Síðustu mánuði hef ég passað nokkuð vel upp á mataræði. Ég hef lést um ca. 8 kg. Þetta hef ég þó gert án þess að vera mjög fanatískur. Ég passa mig yfirleitt vel á virkum dögum, en slaka svo á um helgar og ét einhvern óþverra til hátíðarbrigða.
Þessi tilraun mín hefur í mínum huga algerlega staðfest þær kenningar að kolvetni séu stóri sökudólgurinn í offituvandanum. Kolvetni eru eitthvað sem maðurinn fór ekki að láta sér til munns fyrr en tiltölulega nýlega og við þolum þau einfaldlega ekki nema í litlu magni. Um leið og ég eyk kolvetnaneyslu þá skríður líkamsþungi upp á við (og líðanin fer lóðbeint niður á við). Sem betur fer eru sífellt fleiri að átta sig á þessu og ég spái því að stutt sé í stóra vitundarbreytingu (pardigm shift) hvað þetta varðar. Hér er ágæt bloggfærsla um þetta:
http://www.drbriffa.com/blog/2010/05/18/beware-low-carb-propaganda/
Ég hvet alla sem eru að slást við aukakílóin til að spá í hvað þeir eru að láta ofan í sig af kolvetnum. Það er fljótlegasta leiðin til að ná árangri í baráttunni.
2 comments:
ég veit þetta er satt hjá þér... en kolvetnin eru svo góð! á bragðið..
en þetta er alveg rétt hjá þér.. finn þvílíkan mun á bæði líkamlegri og ekki síst andlegri líðan þegar maður passar upp á kolvetnin..
Jamm....þetta er sjúklega addictive stöff. Enda held ég að það sé erfitt að hætta þessu alveg. Mér hefur líka gengið fínt að halda þyngd í skefjum bara með því að passa þetta svona 80%
-S
Post a Comment