Tuesday, May 25, 2010

Ég vil vera úti-vera

Ég er innipúki að eðlisfari. Líður ákaflega vel uppi í sófa með góða bók og kaffi í bolla. Fyrir þessu eru eflaust ýmsar ástæður. Ég er auðvitað værukær bókaormur, en í ofanálag hin mesta kuldaskræfa. Ég stefni hins vegar ótrauður á að gera á þessu bragarbót og auka útiveru mína. Ég vil vera úti-vera!

Ég sannfærðist endanlega um þetta í gær. Ég fékk mér klukkutíma göngutúr í Seldal með tíkarspottið. Hitastigið var nú ekki til að hrópa húrra fyrir, ca. 8°C, en bjart og fagurt. Ég gekk upp með ánni og tyllti mér svo á árbakkann og andaði að mér svölu vorloftinu. Fannst ég vera lifandi og hamingjusamur. Fann þarna einhverja tilfinningu sem maður finnur bara þegar maður er einn úti í náttúrunni.

Ég held líka að svona göngur séu fyrirtakshreyfing. Maður gengur á ójöfnu undirlagi, upp og niður hóla og hæðir, stekkur yfir læki og skurði. Maður er minntur á það að við erum dýr.

Ég hef því einsett mér að vera duglegri en síðustu ár að ganga úti í náttúrunni og hvet alla til þess arna. Ég held að það auki hamingju fólks verulega að komast út í hreina loftið, finna hjartað slá og heyra fuglana syngja.

4 comments:

Ragna said...

þú mátt hóa í mig í göngutúr við tækifæri.. ég er úti-vera:)langar ennþá út í leiki á kvöldin og vildi oft ég væri krakki svo ég gæti gaufast úti allan daginn án þess að vera talin skrýtin.. en þá er gott að eiga lítil börn:) maður getur gaufast endalaust úti með þeim og Ragnhildur er gjörsamlega útisjúk.. stendur alltaf vælandi við útidyrnar "ÚT ÚT ÚT"..
skemmtilegt orð annars.. gaufast..

p.s. til hamingju með konuna þína í dag!

Anonymous said...

Takk fyrir það!

Ég skal svo sannarlega hóa í þig í göngutúr. Ég held að það gæti verið gaman að fara með krílin í bakpokunum út í urðir einhvern daginn...svona þegar hitastigið skríður yfir frostmarkið. Minn er einmitt algerlega útisjúkur og vill helst BARA vera úti (eða að sulla í vaskinum).

kv.S
p.s: Gaufast ER skemmtilegt orð!

Jón Knútur Ásmundsson said...

Jamm, Seldalur er fallegasti staður á jarðríki. Manstu eftir the gay hiker?

Anonymous said...

Múhahaha! Já!

kv.