Wednesday, July 21, 2010

Fríblogg

Nú hef ég verið í fríi í næstum tvær vikur. Mikið er gaman að vera í fríi! Það er næstum þess virði að vinna launavinnu bara til að fá frí. Fríið hefur verði mjög afslappað hingað til. Það byrjaði reyndar á Eistnaflugi. Ah. Eistnaflug.

Ég er á því að Eistnaflug sé besta hátíð sem fundin hefur verið upp. Það er a.m.k. skemmtilegasta hátíð sem ég hef komið á. Og það skiptir engu máli þótt maður fíli ekki hvert einasta band sem spilar. Ég er líka kominn á bragðið með harðari metal en ég hef áður hlustað á, sem þýðir að ég er farinn að fíla talsverðan hluta af prógramminu. Nokkur bönd stóðu samt upp úr að mínu mati (með þeim fyrirvara að ég sá alls ekki allt!):

  • Skálmöld: Gæti haft eitthvað að gera með að þetta var fyrsta bandið á dagskránni og ég var bara svo ofboðslega glaður að vera kominn á Eistnaflug, en ég fílaði þetta band í ræmur. Folk metall- "tounge in cheek". Þrælspaugilegt.
  • Gruesome Glory: Band nr. 2. Vinir bróður míns frá Akureyri. Skuggalega efnilegri drengir og einn alefnilegasti trommari landsins
  • Endless Dark: Mjög vel spilandi og flottir drengir af Snæfellsnesinu. Gætu átt eftir að gera stóra hluti.
  • Reykjavík! Gífurlega líflegt og skemmtilegt tónleikaband. Erfitt að flokka þá, en skítt með það. (ég sökka reyndar í metaltaxónómíu). Ég spjallaði talsvert við bassaleikarann eftir giggið. Skemmtilega afslappaður gaur.
  • Napalm Death: Fullkomin geðveiki! Nuff Said: Þið getið tékkað á þeim á youtube.
  • Innvortis: Hef ekki séð þessa gaura áður, en mikið voru þeir skemmtilegir. Pönkarar að norðan með mikinn húmor fyrir sjálfum sér og öðrum.
  • Dr. Spock: Hvað getur maður sagt um Dr. Spock? Snillingar! Guðdómlegur þéttleiki, skringilegheit og frumleiki.
  • Momentum: Mjög flottir og öðruvísi. Band sem er enn á uppleið.
  • Beneath: Hágæða death metall. Ekki síst eftirminnilegir fyrir góðan og glaðlegan bassaleikara.
  • Mínus: Alltaf flottir. Hafa samt verið betri. Krummi er því miður ekki að batna með árunum.
  • Celestine: Hrikalega flott death metal band. Frábær trommari sem var EKKI að eipa á double kicker út í eitt. Ætla pottþétt að tékka betur á þeim.
  • Severed Crotch: Þegar ég sá prógrammið fannst mér orka tvímælis að þeir væru að loka hátíðinni. Hugsaði eitthvað svona: "Já, já...vinir hans Stebba......". Boy, was I wrong. Þetta band er ROSALEGT. Tvímælalaust hápunktur hátíðarinnar fyrir mig. Spilamennska á ómennsku stigi. Ég hef ekki séð neitt íslenskt band gera neitt í líkingu við þetta (og þá tel ég Messoforte með). Ef þeir halda rétt á spilunum eiga þeir eftir að verða heimsfrægir (eða....eins heimsfrægir og death metal band getur orðið).

Hátíðin var líka skemmtileg að því leyti að við Urðardrengir fengum að taka nokkur lög. Vorum fyrstir á dagskrá á laugardeginum- á undan auglýstri dagskrá. Mætingin var samt framar vonum- ca. 30-40 manns. Það var gerður ágætur rómur að spilamennskunni, en gítarsándið var samt mikið að stríða mér sem setti strik í reikninginn. Alltaf fúlt að spila ekki í sínar eigin græjur. En....allavega....Þarna náði Urð markmiði sem var sett um leið og við stofnuðum bandið síðasta haust. Vonandi spilum við á öllum Eistnaflugshátíðum hér eftir! (Við ætlum reyndar líka að spila á Neistaflugi. Troðum upp með Deaf Happiness og Ginger Box í Blúskjallaranum kl:09:00 á laugardagskvöldinu. Ég lít á það sem persónulega móðgun ef lesendur mínir mæta ekki :-)

Eistnaflugið hefur náð að halda þessum afslappaða gúddí fíling enn eitt árið. Ég vona eiginlega að hátíðin stækki ekkert meira heldur passi áfram inn í Egilsbúð. Ég óttast það að þetta færi út í eitthvað rugl ef mainstream böndum yrði fjölgað og hingað færi að mæta einhver fjandans hnakkalýður. Það MÁ ekki gerast. Þetta ömurlega slys eftir að hátíðinni lauk var svo auðvitað algert sjokk. Ég vona bara að það verði ekki tengt við hátíðina, enda leitun að hátíð sem fer jafn friðsamlega að slysalaust fram. En slysið var virkilega ömurlegt. Vonandi gerist ekkert þessu líkt framar á norðfirskum hátíðum.

En nóg um Eistnaflug...

Fríið hefur að öðru leyti verið afar afslappandi. Við fórum til Akureyrar í síðustu viku í nokkra daga. Þar sáum við Heru (hina íslensk-nýsjálensku) spila (Hún er æðisleg!). Annars var bara slappað af. Svo erum við að fara í sumarbústað í dag ásamt mömmu, Rögnu systur og hennar fjölskyldu. Á Breiðdalsvík! Það er ljóst mál að það er kreppa, þar sem þetta er það mest extravagant sem við höfum bókað í fríinu okkar. Hlakka samt mikið til að eyða þarna tíma í faðmi fjölskyldunnar. Aldrei að vita nema við kíkjum á franska daga eða í fjöruferð á Djúpavog.

Ég er búin að lesa talsvert síðustu vikur: mest einhverja reifara. Nemesis, eftir Jo Nesbo var fjandi góð. Svo er ég að lesa 1000 blaðsíðna múrstein eftir Dan Simmons sem heitir Drood. Þrælmagnaður andskoti. Ein aðalpersónan er Charles Dickens. Simmons hefur greinlega lagst í mikla heimildavinnu. Hann lýsir lífinu um miðja 19. öld af stakri snilld. Djöfull hefði ég viljað vera yfirstéttaintellektúal á þessum tíma! Stjanað undir rassgatið á þeim og svo voru ýmist étandi yfir sig eða þambandi morfín!

Ég er búinn að vera nokkuð duglegur að drekka vín í fríinu. Þar standa upp úr frábær vín frá Trivento. Argentínsk vín sem frábær kaup eru í. Cabernet Reserva er t.d. gífurlega gott vín fyrir peninginn Kostar innan við 1800 kallinn, en er alveg himneskt. Ath. að gott er að umhella því. Það þarf a.m.k. á góðri öndun að halda.

Ég er ekki viss um að ég bloggi nokkuð meira fyrr en eftir frí. Vona að þið hafið það gott.

0 comments: