Hátíðarnar voru annars einstaklega ljúfar, fyrir utan ælupest sem ég náði mér í rétt fyrir jól. Þessi jólabúlimía varð þess samt valdandi að ég kom út úr jólunum jafn þungur og ég fór inn í þau, sem hefur ekki gerst í allmörg ár. Fátt er svo með öllu illt......
Jólin einkenndust af miklum bóklestri, tónlist, sjónvarpsglápi og vínsötri. Ég las Arnald og Yrsu á milli hátíða og var prýðilega ánægður með báðar bækurnar. Ég byrjaði svo nýja árið á því að gleypa í mig bók eftir Jo Nesbo: Snjókallinn. Hún var (eins og við var að búast) svöl. Ég er ekki frá því að Harry Hole sé mesti töffari síðan Morgan Kane var og hét (sem var, nota bene, líka hugarfóstur Norðmanns).
Ég fór óvenju varlega í áramótaheit að þessu sinni. Ætla að einbeita mér að því að koma mér upp ákveðnum venjum og halda þeim við. Sumar þeirra hef ég haft áður og þarf bara að rifja upp. Ég ákvað að byrja á því að vakna fyrr á morgnana og byrja daginn á hugleiðslu. Það gengur bara skrugguvel. Á morgun ætla ég svo að byrja á vikulegum lyftingum. Býst fastlega við skrautlegum harðsperrum á sunnudag. Og reyndar ekki bara harðsperrum heldur líka þynnku!
Annað kvöld verð ég nefnilega í brúðkaupsveislu á Hallormsstað og svoí partíi á Einarsstöðum. Jón Knútur (my best buddy since forever) og Esther giftu sig á dögunum (á Cook eyjum í Kyrrahafinu!) og ætla að samfagna með nánustu vinum og fjölskyldu. Ég held að það verði verulega skemmtilegt og hlakka mikið til, enda vinnahópurinn með eindæmum skemmtilegur. Ekki ólíkegt að einhverjar heilafrumur liggi í valnum eftir kvöldið, ef ég þekki þennan hóp rétt.
Anyhoo.....Ég stefni á að verða eilítið duglegri að skrifa á þessu ári en á því síðasta. En ég er líka duglegur við að klúðra áramótaheitum....
Þakka annars lesendum mínum (sem eru nú aðallega vinir og vandamenn) samfylgdina á liðnum árum og óska öllum, nær og fjar, gleðilegs árs. Munum að nú mun birta dag frá degi, alveg fram á mitt sumar. Og þá verður EISTNAFLUG! Yeah!
0 comments:
Post a Comment