Saturday, October 29, 2011

Mörlendingar

Samkvæmt nýlegum fréttum munu Íslendingar vera orðnir feitasta þjóð á vesturlöndum á eftir hinum þéttvöxnu Bandaríkjamönnum. Bra....vó. Vel gert. Það þurfti að sporðrenna mörgum hamborgurum, súkkulaðistykkjum og pizzusneiðum til að ná þessum árangri og ég veit að það var ekki auðvelt. Til hamingju Ísland. Nú getum við farið að kalla okkur Mörlendinga með stolti.

Ef við leggjum okkur virkilega fram um jólin þá er ég viss um að við getum þokast a.m.k. einu beltisgati nær fyrsta sætinu. Ég ætla að útskýra í stuttu máli hvað við þurfum að gera til að ná fyrsta sætinu, svona ef einhver skyldi ekki vera að fatta hvað þarf til. Við þurfum nefnilega að hafa alla með á nótunum. Því fleiri sem skilja næringarfræðina á bak við árangur Íslendinga, því meiri líkur á að við náum að hrifsa fyrsta sætið!

Í fyrsta lagi þurfa allir að skilja grunnkonsept orkubúskapar líkamans. Magn líkamsfitu snýnst nefnilega algerlega um orkubúskap. Maður þarf einfaldlega að borða fleiri kaloríur en maður brennir og þá fitnar maður. It's like magic! En hvernig veit maður að maður er að borða nóg? Jú, ef þú ert stöðugt að verða þyngri og ólögulegri, þá ertu sennilega á réttri braut. Ef ekkert er að gerst hjá þér, þá gætir þú t.d. prófað þetta:

a) Reiknaðu út hvað þú brennir mörgum kaloríum (það eru ótal síður á netinu sem bjóða upp á þetta, t.d. www.caloriecount.com )
b) Fylgstu svo með því hvað þú borðar margar kaloríur yfir daginn, nokkra daga í röð. Skráðu allt niður og reiknaðu út kaloríufjölda (það er einnig auðvelt að finna upplýsingar um kaloríuinnihald á netinu, t.d. á ofangreindri vefsíðu, auk þess sem umbúðir gefa oft upp kaloríuinnihald). Athugaðu að það er best að vigta ofan í sig matinn á meðan á þessari rannsókn stendur.

Svo er þetta einfalt reikningsdæmi. Ef þú ert að borða FÆRRI kaloríur en þú brennir (God forbid!). Þá ertu að grennast! Þetta er það sem við viljum forðast eftir fremsta megni.

Þetta er í raun allt sem maður þarf að vita ef maður vill þyngjast, en það er líka fleira sem getur hjálpað til:

a) Passaðu þig á því að hreyfa þig sem minnst. Öll hreyfing veldur nefnilega brennslu á kaloríum. Þú þarft því bara að éta meira til að vinna upp mismuninn (sem getur reyndar verið gaman, en hafðu í huga að við erum að stefna að því að þyngjast sem hraðast! Slepptu því hreyfingunni og éttu eins og þú getur í þig látið). Passaðu þig sérstaklega á lyftingum og styrktaræfingum. Þær byggja nefnilega upp vöðva, versta óvin þeirra sem eru af einhverri alvöru að vinna í að fita sig.

b) Borðaðu sem mest af sykri. Sykur er algerlega laus við öll næringarefni, en gefur mikið magn af bragðgóðum kaloríum. Það góða við sykurinn er líka að hann fokkar sífellt upp í þér blóðsykurjafnvæginu, þannig að maður fyllist reglulega stjórnlausu hungri og getur þá troðið enn meira í andlitið á sér! Það er mikið af sykri í gosi, nammi, kökum og öllu því okkur finnst best, þannig að þetta er borðleggjandi. (Athugaðu að sykur er kallaður ýmsum nöfnum á umbúðum ( http://www.fitsugar.com/Other-Names-Sugar-Appear-Labels-810571 ). Það er því alger óþafi að forðast vöru bara af því að það er "agavesíróp" í henni. Hún er alveg jafn fitandi fyrir það!)

c) Boðaðu sem mest af kornvörum. Þær innihalda ýmiskonar skemmtileg efni sem hindra frásog næringarefna og dúndra upp blóðsykrinum. Gott stöff!

d) Boðaðu sem mest af fituríku snakki, svo sem kartöfluflögum. Ómissandi vopn í baráttunni við þyngdartapið.

En það er líka gott að vita hvað maður á að forðast. Það er nú einfalt. Þú þarft að forðast eins og heitan eldinn að borða náttúruleg matvæli sem mannslíkaminn þróaðist til að blómstra á. T.d. kjöt, fisk, grænmeti, rótargrænmeti, fitu, egg og ávexti. Passaðu þig sérstaklega á próteini. Ef þú forðast prótein sem mest, þá taparðu miklu meira af vöðvamassa, sem flýtir aftur fyrir því að þú fitnar!

Ókey...Ég held að ég sé búinn að útskýra nóg til að þú getir lokað þessari síðu og komið þér að verki. Þetta ER ekki flókið. Ef við höldum í sameiningu vel á spöðunum (eða göfflunum, öllu heldur), þá getum við í sameiningu náð því markmiði að verða feitasta þjóð í heimi. Við getum þetta! Við verðum hins vegar að trúa því að við getum fitnað. Þetta snýst nefnilega að miklu leyti um hugarfar.

Ísland! Best í heimi!

3 comments:

Ragna said...

Góð færsla:)Skelfileg þróun! Ísland, feitast í heimi!! Var að horfa á Dr. Phil í vikunni og mér fannst hann segja að 85% bandarísku þjóðarinn væri yfir kjörþynd! Getur það verið?

Anonymous said...

Það er bannað að posta svona á "nammidegi" .. :)

Góð grein.

Anonymous said...

Skv. CDC eru 34% Ameríkana yfir tvítugu offitusjúklingar (obese) og önnur 34% eru í yfirþyngd (tölur frá 2008).

kv.
Siggi